Ljósmyndafundir hefjast þann 8. janúar 2025

Hress og kátur hópur á ljósmyndafundi veturinn 2024.
Hress og kátur hópur á ljósmyndafundi veturinn 2024.

Ljósmyndasafn Akraness heldur ljósmyndafundi alla miðvikudaga kl. 10-12 í Svöfusal, Dalbraut 1.

Fundirnir eru opnir öllum áhugasömum.

Á fundunum fer hópurinn yfir fjölbreyttar ljósmyndir og greinir andlit, hús, skip og kennileiti. 

Fyrsti fundur vorannar er þann 8. janúar 2025. 

Verið velkomin.